NaRíAn

Ertu búin að skipta um naríur í dag??

18.02.2008 11:41:55 / golden-tiger

Pása

er í pásu með þetta blogg, blogga bara á síðunni hennar Svölu Katrínar:) endilega kíkið þangað, þar er miklu skemmtilegra;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 23:07:54 / golden-tiger

Lykilorðið

Þið sem hafið sent beiðni um lykilorð á barnalandsíðuna og fengið ekkert svar, þá sendi ég ykkur örugglega svar, en stundum er pósturinn eitthvað bilaður og sendir ekki póst, þannig að þið getið bara prufað að senda mér sms um lykilorðið: 8654591


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 19:21:15 / golden-tiger

Hún er æðislegust og yndislegust í heimi!!!!!

Já legvatnið er búið að vera fyrirsögnin ansi lengi á blogginu mín, best að bæta eitthvað úr því. Ég hef bara verið svo upptekin af æðislega yndislega barninu mínu!!!J Þetta er æðislegast í heimi, ekkert er betra en að vera orðin mamma!! Frábærasta sem ég hef gert á ævinni, að eiga hana, og hugsa um hana! Svo á morgun fær hún nafnJ ákvaðum að drífa bara í að skíra hana 18 jan á afmælisdegi pabba. Vildum gera það á einhverjum sérstökum degi, og það eru engnir sérstakir dagar í febrúar og við nennum nú ekki að bíða alveg til páska. Hún verður í flottasta skírnarkjól sem ég hef séð, sem systir mömmu heklaði, og svo verður skírnarkakan hennar að sjálfsögðu BLEIK. Hún hefur það ótrúlega fínt og er alltaf jafn æðisleg og yndisleg, hehe. Ég hef þurft að fara uppá sjúkrahús á hverjum degi útaf skurðinum, byrjaði að blæða, fékk sýkingu, en þetta er allt að koma núna, sem betur fer, hefur ekkert verið neitt þægilegt sko, frekar ógeðslegt bara. Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja nema hvað dóttir mín er æðisleg!! Haha, hef lítið verið að gera nema hugsa um hana, og ég blogga um hana bara á hennar síðu. Nú er leikurinn að fara byrja þannig að ég reyni að blogga eitthvað meira af viti næst, vildi bara láta vita af mér og sonna, og munið eftir síðunni hennar, þar verð ég dugleg að setja inn myndir og að skrifa og sonnaJ  

Kv. Stoltasta mamman í heiminum!

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 11:59:48 / golden-tiger

Legvatn

Ég vildi bara deila því með ykkur að nú er kominn aðfangadagur, og ég missti vatnið um 9 leitið í morgun:haha: var að koma af sjúkrahúsinu og allt er eðlilegt, og nú er ég bara komin heim og erum að bíða eftir að eitthvað gerist:D ég er bara með smá verki eins og er, og í bakinu, en ég þarf að vera með bleiju því það lekur ennþá vatn:P það er ekki það þægilegasta sko. En já við verðum bara í hnífsdal í dag hjá mömmu og pabba og bíííðuum, og svo er bara spennandi að vita kl hvað hún ætlar að koma, prinsessan:) en já ég ætla að fara í sturtu og sonna, læt ykkur vita meira kannski í dag:)

ég er bara eins og maría mey og jesú dæmið, hehhe. jesúína:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 13:46:19 / golden-tiger

pæli pæli pæli

Smá pæling, með þetta áramótaskaup og þessa einu auglýsingu, ég skil ekki hvað fólk er alltaf að mótmæla öllu, alveg ótrúlegt, það fer svo svakaaleega fyrir brjóstið á fólki að það eigi að skella einni auglýsingu í miðju áramótaskaupi, sem á að vera 60 sekúntur, og skaupið er alveg sko 50 mínotur! Og er að mótmæla að rúv afli sér peninga með þessari auglýsingu. OG hvað með það, ef einhver vill borga svona mikið fyrir að fá að auglýsa þarna þá er það bara gott og blessað og ekki annarra mál. Er ekki fínt að fá smá klósettpásu í miðju skaupinu, eða komast fram til að sækja meiri bjór, nammi, osta og fleira. Það mætti alveg vera svona 5 mínotna auglýsingahlé finnst mér, þá getur maður líka spjallað um það sem er búið að gerast, hvernig manni finnist skaupið og það. Piff þoli ekki svona fólk sem þarf alltaf að mótmæla öllu, af því bara......Svo er hér eitt sem ég hata, það er þegar maður er að glápa á fótbolta í sjónvarpinu, þá eru sýndar nærmyndir af því að þegar kallarnir hrækja þessum stóru horslummum á völlinn, og líka þegar þeir halda fyrir aðra nösina og sníta sér bara út í loftið, blahh, fæ alveg grænar sko!En já erum bara búin að vera e-ð á flateyri og sonna því steina kleina er komin og sonna, skelltum okkur í sund í gær, og ég prufaði að leggjast á bakið og ath hvort ég myndi fljóta upp með loftbelginn sem ég er með framan á mér, en neibb, komst að því að þó að maður sé með belg, þá sekkur maður líka. Tilraun ha. Fórum svo í pottinn, það var fínt, fekk smá stingi þegar ég var komin upp úr, eftir alla slökunina. Svo fórum við í nokkrar búðir á ísó, og svo eldaði steinunn kjúlla fyrir okkur sem blíblablú kenndi henni að gera;) og þetta var bara ótrúlega gott sko! J namm! Ætla pottþétt að fá uppskriftina af þessu sko. Já ég fann manneskju sem nennti að fá sér hamar með mér, það var hún yndislega valdísJ hún bjargaði mér alveg, annars hefði ég bara farið í fýlu. Piff. En það var gaman að hitta hana og heyra sögur frá útlandinu og sonnaJ Í dag ætla ég að gera lokaþrif fyrir jólin, það tekur svona klukkutíma, því það er enn allt svo hreint síðan ég þreif fyrr í desember, svo ætla ég að hmm... já láta það bara ráðast hvað ég geri.En allavega þá líður okkur þrem bara vel, góðar, eða mjöög góðar hreyfingar, oft hiksti, það er dáldið óþagilegt stundum, en hún meiðir mig enn í rifbeinunum, ég er fljótt þreytt, og er með bjúg á kálfum og í puttunum sem er ekkert smá óþagilegur staður, svo fæ ég stundum bjúg í andlitið ef ég hef verið að ofkeyra mér. Langar alveg rosalega að fá hana í heiminn núna, en vona að hún geti beðið til 2008, svona skemmtilegra uppá afmælisdagsetninguna og sonna. ;) Er að hlusta á e-ð lag í útvarpinu sem minnir mig svo á ásgerði, hehe, hún sendi mér þetta lag e-rn tíma, og sagði að ég yrði að fíla þetta lag, og já ég geri það, en ég veit ekkert hvað það heitir, eða jú teenagers eða e-ð, chemical eða blahh, en allavega þá sakna ég ásgerðar og hlakka til að sjá þig og gefa þér stórt knús eins og ég var búin að lofa, en ég veit ekki hversu nálægt mér þú kemst útaf búmbú;) hohooo.En allavega þá verð ég að fara að byrja að þrífa áður en ég nenni því ekki. Ohh ég nenni því nú samt eila ekki núna, en blahhh enga leti, get verið löt þegar ég er búin!Bleeeee , ekkert streeeeee og veriði hreeee

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 12:21:16 / golden-tiger

koddað éta eitthvað!

Jææks, ég var að átta mig á hvað það er stutt eftir af meðgöngunni!! Og spennan er sko alveg farin að gera dáldið mikið vart við sig. Dreymdi í nótt að ég væri búin að eiga og sá barnið, það var stelpa, ótrúlega sæt, og svo fór ég í heimsókn til mömmu og fattaði þá að ég hafði gleymt barninu heima, og ég brunaði heim, var með svona talstöð, og heyrði í henni gráta og ég var að reyna að hugga hana í gegnum talstöðina, hehe, og svo var fólk í draumnum að spurja mig hvernig fæðingin gekk, og ég mundi ekkert því hún var svo fljót. Hehe, þetta var skemmtilegur draumur, en samt svona þegar ég var að dreyma vissi ég að þetta var ekki í alvuru, aji skrítið þið fattið, hehe. Vorum hjá ljósu í morgun, og skoðuðum fæðingarstofuna, þegar ég labbaði þar inn hélt ég að mér myndi líða vel, því það er þarna sem öll kraftaverkin koma, en mér leið sko ekkert vel þarna inni, langaði strax út aftur :S samt kvíður mér ekkert mikið fyrir fæðingunni sko.Þið sem eruð búnað eiga börn, hvað virkaði á ykkur, hláturgasið, nálastungur, lyfin þarna, deyfinging þarna, fara oft í sturtu eða hvað? Í gær gerði ég mikið, fór í vinnuna í jólamatinn, var þar í um klst, og fór þá uppa skrifstofu, fór með pakkann hennar ásgerðar, opnaði það sem ég fékk í jólamatnum í vinnunni, fór á pósthúsið, bónus, sótti pabba og hjálpaði honum að kaupa afmælisgjöf og jólagjöf, keypti aukaafmælisgjöf fyrir steinunni, keypti 2 aðrar jólagjafir, svo að núna á ég bara eftir að kaupa eina, og ég veit hvar og hvað ég kaupi, svo allt jólastússið er búið hjá mér, nema ég á eftir að þrífa aftur og þá er allt búið held ég. Svo þarf ég að fara að flokka barnafötin eftir stærðum og útliti og allt það, vantar einhvern til að hjálpa mér í því, og svo þarf ég að fara að pakka niður í tösku það sem ég vil taka með mér á fæðingadeildina, best að hafa það tilbúið því prinsessan gæti komið hvenær sem erJJJOhh svo langar mig í hamar eða eitthvað gott í dag, og félagsskap með. Ætla að kúra aðeins núna og bíða hvort einhver hringi og segji, hey, koddað éta, en ef enginn hringir þá kúra ég bara lengur, og fer svo að þrífa hér eða e-ð. Jæjja bless þá

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 12:16:35 / golden-tiger

jóla drjóla snjóla kóla

Já jólin eru bara svona næstum komin, bara 7 dagar í pakkadag, en mér finnst samt eila jólin vera komin skoJ ég klára seinustu 3 gjafirnar í dag, og ætla að sjá hvort ég finni ekki e-ð svona auka með afmælisgjöfinni hennar steinunnar;) svo þarf ég að kaupa það sem pabbi gefur mömnu, fara í bónus að kaupa einhvert æti og plastkassa og sonna, eins gott að það séu enn til bleikir kassar, piff, ég bað hann að panta þá fyrir mig, þessa minni, og svo bara klárar fólk þá um leið. Ef ÞÚ kauptir þér bleikan 30 lítra kassa þá er ég mjöög sár útí þig :-#  =Þ hohohoo. Svo þarf ég að fara með jólakortin á pósthúsið í dag, og pakka til bergrósar og có, svo þarf ég að fara kaupa nagla og sonna já þið þurfið ekkert að vita þetta. Á laugardeginum sem var fórum við á jólahlaðborð í edinborg, það var fínt, fannst samt aðalrétturinn ekkert spes, og hef heyrt nokkra fleiri segja það, mér fannst laxinn, hangikjötið og kaldi hamborgarhryggurinn góður, en annað var ekki spes. Svo var eitthvað annað allskonar jukk, eins og síld og eitthvað ógeð sem eflaust mörgum fannst mjög gott, en ég lagði ekki í það né eftirréttinn. En þetta var fínt, og fullur salur. En við fórum heim um eitt leitið, var komin með bjúg og illt í magan. Afi gamli sem ég hélt að myndi fara fyrstur heim, hann fór ekki fyrr en um hálf 3 heim, tjhjáhh, þetta getur hann, djammað fram á nótt, hehe og amma með honum, og kjartan bjóðandi þeim á barnum. Já svo komst ég að því að ófrískar konur sem líður eins og stórri og þungri belju verða líka fyrir áreiti karlmanna, eða útlendinga að sjálfsögðu. Ég var e-ð að labba til birkis, og þá kemur maður og stendur fyrir mér, og ég ætlaði að fara framhjá honum en hann leyfði mér það ekki og ég sagði þá: hvað!, og þá tók hann í hendina á mér og horfði bara á mig, ég hélt að þetta væri einhver vinur birkis eða e-ð sem væri að fara að kynna sig, svo ég sagði aftur hvað! Ha! Ætlaru ekki að segja neitt eða! Má ég komast! Þá sagði hann e-ð á útlensku, og þá fattaði ég að þetta var alveg örugglega ekki einhver vinur birkis svo ég ætlaði að reynað komast, og þá kom einhver ógeðslegur portúgali eða lithái eða e-ð ógeð aftan af mér og stríkur um rassin á mér og ég varð svo reið að ég öskraði  ojjjjjjjjj og hrinnti honum í burtu og dreif mig til birkis, og var með gæsahúð og ógeðistilfinningu allt kvöldið, oj oj ojjjjj. Ég veit ég er ofurpjöttuð þessa mánuðina, en ég hélt nú að ófrískar konur fengu frið fyrir svona ógeðisköllum. Og alltaf eru það útlendingar sem gera svona. Blöhhh. Oj. Svo langaði mig svo til að drekka, en það er örugglega bara af því að ég mátti það ekki. Loksins orðin nógu gömul á barinn og í ríkið, og hef svo ekkert að gera þangað. Piff. ;)En já núna eftir smá er ég að fara í vinnuna mína í jólamat, hitti alla og sonnaJ það verður gaman. Svo núna ætla ég að láta þeta vera gott og fara að étaJ Thjááhh;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 13:59:09 / golden-tiger

Röfli röfl

Já þetta veður má sko alveg fara hætta, ekkert gaman af þessu. Erum enn bara á flateyri, búnað vera þar síðan á mánudagsmorgun, förum líklega heim í dag, því ég þarf að fara setja í vél og sonna, er búin að nota öll þægilegustu fötin, og það er mjög takmarkað sem mér finnst þægilegt núna sko, vildi óska þess að ég gæti verið í riiisastórum kjól sem leggst ekki upp að líkamanum, og verið nærbuxnalaus, og enginn myndi segja neitt við því, hehhe. Svo langar mig að kíkja til mömmsu og pabbsa,er ekki búin að fara til þeirra í tæpa viku. En ég hitti þau á morgun á jólahlaðborðinu Jog svo þarf ég að komast á pósthús og senda jólakortin og kaupa restina af gjöfum, á víst að sjá um gjöfina frá pabba til mömmu, því pabbi er þessi típíski karlmaður sem leiðast búðirnar alveg hrikalega, þannig að ég ákvað að bjarga honum frá því. hmm, ég er að reyna að finna eitthvað meira til að tuða um til að stytta mér stundir, og jú ykkur sem nennið að lesa þetta, þá kannski sérstaklega steinunni sem leiðist svo í vinnunni, enginn nennir víst að kaupa sér bíl í rokinu. Piff, ég myndi samt gera það, EF ég ætti monní monní. =$ jæjja mér heyrist og sýnist veðrið hér samt bara vera að lægja, kannski verður ekkert úr þessu, jeijjj það væri æði. Svo sá ég frétt áðan um að köttur fauk á stofuglugga einhverstaðar í rvk, og iss, ég bara er ennþá með samviskubit, því að þegar ég las fréttina kom einhvert kvikyndi í mig og ég fór bara að hlægja:S ljóta ljóta ég. Hmm já erum að pælað fara að baka á eftir held ég, til að eiga nóg til að fita steinunni þegar hún kemur, því hún bara grennist og grennist, svo við bætum úr því með því að hafa nóg af kökum og gumsi á boðstólum þegar hún kemur, moohahahaa! Já á mánudaginn í hádeginu er jólamatur í vinnunni minni, það verður gaman að hitta alla afturJ Svo á ég eftir að hitta alla, tara er búin að panta tíma hjá mér, og valdísin líka, og svo er ég búin að panta tíma hjá þóru og rannveigu og steinunni, og ég og tinna vorum víst líka búinar að tala um typpakökuhitting. Svo þarf ég að fara drífa mig með gjöfina hennar ásgerðar til foreldra hennar, svo hún fái að fljóta með suður, á svo eftir að senda pakka til rvk til bergrósar og có, tíminn líður bara svo hratt að bráðum verða jólin búin og ég ekki enn búin að senda gjafirnar né jólakortin. Piff, ég verð að gera það á mánudaginn. En já nóg tuð núna þetta er komið útí einhverja vitleysu, og ég er að drepast í rifbeinunum núna, svo þetta verður að duga í bili. BæbæbæbæbæbæJJJJ

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 12:42:51 / golden-tiger

fjúúúki fjúúúk

ojjjj þetta veður, það er sko ekkert spennandi, allt í klessu bara og svo náttla læti í þessum vindi á nóttunni og þá sefur maður náttla ekki neitt:P plehh. Við erum bara búin að gista á flateyri síðustu 3 nætur, erum að hita rúmið upp fyrir steinunni:) erum búnað pakka inn einhverjum gjöfum og baka og eitthvað sollis. bakaði til dæmis pítsu í gær, og núna ætla ég að fara éta afganginn af henni;) slurrrrp. ..svo verð ég að fara að drífa í að kaupa þessar 3 gjafir sem ég átti eftir, eða 4 núna, var verið að hringja í mig og segjast ætla gefa mér pakka því manneskjan sá eitthvað sem henni fannst hún bara þurfa að gefa mér;) híhí. ég ætlaði svo alltaf að vera búin að setja inn óskalista, en ég veit eila ekkert hvað mig langar í, hér eru einhverjar hugmyndir: hrærivél, bleika!!, tvær tegundir að stellum, fæst í blómabúð, þrist og borð fyrir tvo, vantar íþróttatösku, bakpoka, ferðatösku, sturtusápu, rollon, ylmvatn, föt, skó, glas svona sem eru frá þessum hönnuðum þarna, fæst í casa og blómabúð, punt, sængurföt x2, náttföt, glingur og jáhh, ég man ekki meira, ég bæti því þá bara við þetta blogg seinna. en allavega, þá ætla ég að fara fá mér naríupítsu;) bleeeeesss:D

ps. já ég gleymdi að segja, að ég var í skoðun í gær, og allt er eðlilegt og fínt og frábært og það, er komin 37 vikur og 1 dag :haha: mússí mússí


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 16:50:25 / golden-tiger

Bökunarlykt og jólatónlist, mmmmmmmm:)

Já helgin búin, það var nú ekki mikið gert, ég pakkaði inn næstum öllum gjöfunum, fjúff, þær eru ekkert smá margar, um 40 gjafir!!!! Shíííí.! ég held að við séum jólasveinninn sko! Á föstudaginn var étinn dýrindis kjúllaréttur, og svo komu ástrós og gabríel til okkar um kvöldið og við horfðum á video og átum nammið þeirra frá þeim. Jiiii. Laugardagur þá skruppum við á flötueyri og sáum jólasveinana og jólatréð og fórum í félagsbæ og fengum kalt kakó. Eða ég allavega. Keyptum kerti á heilar 1100 krónur, já sæll, en það var e-ð handgert eða e-ð, (en eru samt ekki öll kerti handgerð eða?) ne bara spyr, en þetta var sérstakt og flott kerti, með jólatrjám og stjörnum með furunálaylmJ ég veit ekki hvort ég tími að kveikja á því :P hehe. En svo um kvöldið átum við djúpan fisk og franskar, og svo nammi um kvöldið, og svo var bara farið heim um 12 leitið. Svo í dag er ég bara búin að vera að baka smákökur, namm, þær eru sko ekkert smá góðar hjá mér;) Alleg eins og mamma gerirJ og bökunarlyktin er ææðiii, og jólatónlistina hef ég haft í botni í allan dag, svo fólk i blokkinni ætti að vera komið í mikið jólaskap;) vona að enginn sé þunnur þar. Hoho... En já svo hef ég samt verið að drepast í rifbeinunum mæinum í dag, er svo aum, hún dúndraði þar í hádeginu, meiraðsegja birkir sá hvað hún sparkaði fast. Svo hef ég verið að fá verki neðst í maganum, ajji þar sem hausinn er búinn að skorða sig eða hvað sem maður kallar það, úff, þeir verkir eru mjöög vondir, þeir koma svona annars lagið, og þá kyppist ég til og hnipra mig saman. Svo núna er ég orðin dáldið þreytt, verð að halla mér aðeins. Ég ætlaði að setja jólagjafaóskalista hér, en ég nenni því ekki núna. Ætlað fá mér mandarínu. Kv. Naría María Mandarína bumbulína;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 21:10:50 / golden-tiger

vóww sko!!!

Vá bara 26 dagar eða svo í daginn sem ég er sett!! Fjúff það verður sko fljótari að líða en allt sko, því það er svo stutt síðan mér fannst svo langt í að ég þyrfti að drífa mig að senda pakkana til noregs, en hva svo bara núna er ég alveg að fara renna út á tíma. Shíííí ég hef aldrei upplifað svona hratt ár. En núna erum við búin að kaupa allar jólagjafir nema eina! EINA sko! Eða eila tvær samt.  Það kalla ég nú bara MET! Og svo erum við eila búin að skreyta allt og þrífa og þá er eina sem er eftir að gera er að baka;) jeijjj, éta éta éta. Og baka typpakökur með tinnu, og hitta töru, já tara ég sakna þín líka obbosssla og ég heimta líka hitting, ætti kannski að bjóða ykkass í maríupítsu eða e-ð annað gómsættJ Já í nótt var önnur mjöög svo leiðinleg nótt, gat ekki rassgat sofið vegna brjóstsviða, ég tók töflurnar, en hann fór ekki, svo ég þurfti mikið að vera á bröltinu til að allt myndi bara ekki gusast uppúr mér, og shííí sviðinn sko, hef ekki fengið svona slæmann áður, örugglega af því að við borðuðum svo seint, vorum ekkert svöng í kvöldmatnum svo við borðuðum um tíu leitið, það geri ég allavega aldrei aftur, og svo er ég svo brjálæðislega sjúúúúk í mandarínur að ég er farin að velta fyrir mér hvort það sé nokkuð óholt að borða óhóflega mikið af þeim? Óhóflega kalla ég um ca svona 8 á dag, hehe, jabb ég veit, ég sagðist vera sjúk í þær Hehe:p en ég gat enga sollis borðað í gær, og þá kannski gerði líkaminn uppreisn! Hoho, nee ég veit ekki. Pæl pæl pæl. Svo næst á dagskrá hjá mér er fyrst ég er búin að þvo eila öll barnafötin, er að flokka þau öll eftir stærðum og setja þau efst í skúffurnar sem ég nota fyrst og sonna, svo erum við eila búin að fá alltof mikið af fötum gefins og lánað held ég, en það kemur bara í ljós, þá verður því bara skilaðJ en jiii hvað ég hef gaman af svona barnafötum og dóti og sonna, að skoða, ég er alltaf að skoða barnafötin sem ég er með núna, sumir elska föt, ég elska barnaföt, híhí;) Birkir sagði að ég ætti að vinna í barnabúð, þegar við komum úr ólivía og óliver. Jii það væri ógissla gaman en samt ekki jafn gaman og að vinna með börnin sjálf. Jiiiiiiiii segji ég bara við þessu öllu saman;)Svo í gær þá fórum við að horfa á Ástrós að keppa í freestyle danskeppni, hún stóð sig ekkert smá vel, maður bara fykltist stolti;) hún var lang minnst og lang sætustJ var meiraðseja smá máluð, hún og vinkonur hennar;) hohoo. En já nú er ég farin að taka því meira rólegra, finn hvað ég er oft orkuminni og sonna, líka vegna svefnleysis og sollis. En búmba hefur það fínt, finn stundum smá verki, óþægilegt, en ekkert alltaf vont, og svo er hún alltaf svo rosalega hörð þessa dagana, því spara ég bumbugakdurskremið ekkert sko. Finnst stundum eins og allt í einu muni barnið sparka gat á magann á mér, hehe, eða sparka rifbeinunum mínum upp í háls. OG já svo hlakkar mig til þegar þóra er búin í prófunum, þá getur maður kannki gert e-ð sniðugt með henni og pallaJ gangi þér ótrúlega vel!! *krossa fingur * En ég var víst búin að ákveða að hafa þetta blogg aðeins styttra en  hitt svo einhver nennti að lesa það, þannig að ég kannski blogga bara meira á morgun;)(jiii er komin yfir 36 vikur, shííííí;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 12:36:47 / golden-tiger

mánuður og einn dagur þangað til ég er sett=) íííssssk:)

Jæjja er ekki kominn tími á smá færsluJ Margt búið að gerast en ég nenni ekki að segja frá öllu síðan á þarseinustu helgi eða e-ð. En allavega á seinustu helgi fórum við suður með mömmu og pabba, ömmu og hundunum, borðuðum hjá bergrósu og þar var kristín líka, gaman að hitta allaJ svo næsta dag héldum ég og mamma í kringluna og smáralind. Fjúfff. Og þar var verslað, eða meira samt mamma sko en ég. Svo hefur verið sagt að steinunn greyjið sé brjál í búðum, en iss, ekkert miðað við mömmu sko. Enda sagði mamma: ég þyrfti eila að fá steinunni með mér að versla (því ég var búin að segja að hún væri sko verri en hún) ;) hehe og ég náttla ólétt þarna og gat ekki sprettað svona í hverja einustu búð og keypt e-ð, hehe, en ég reyndi mitt besta, enda fékk ég alveg sko bjúgu og illt allstaðar eftir þennan dag. En það sem maður leggur ekki á sig til þess að kaupa jólagjafir fyrir ykkur fólk, ha, sko ég keypti mér EITT hálsmen, herðatré og 5 skálar fyrir morgunmat í rvk, og allt annað keypti ég fyrir ykkur fólkJ og prinsessuna AUÐVITAÐ;) ég er bara eins og hrói hötturJ húhúhú!En já það sem var keypt fyrir prinsessuna var eitt stykki barnavagn,ógissla flottur og bestur og æðislegastur, og svo skiptiborð, hilla, ótrúlega mússí mússí múúússsííí mjúúúkuur hvítur galli, hún verður eins og lítill ísbjörn í honumJ ætlum að hafa hana í honum þegar við förum heim af sjúkró, hmm og svo keyptum við pils, ógilla sætt, og keyptum svo svona pæju gallabuxurJ þá er allt tilbúið og klárt fyrir prinsessu nema við fáum vögguna senda í desember þegar brimar hættir að nota hana, og svo eigum við eftir að fá bílstól. Jiiii það er bara mánuður eftir! Æ dónt trú it, það er svo stutt, og spenningurinn eykstJ Svo hlakkar mig líka smá til að geta snúið mér í rúminu áreynslulaust og reist mig upp og beygt mig , heheh. En já í rvk var alveg geggjað að gera hjá okkur, að kaupa kaupa kaupa, og svo fórum við einu sinni í bíó með mömmu og pabba, og svo náttla fór maður út að borða á hverju kvöldi eila, pítsa hut á fimmtudegi, pasta á madonnu á fös og farið heim kl 8 og steinrotast, á laugardag var pöntuð dominos hjá kristjáni og hönnu og svo á suinnudegi var steikarhlaðborð á aski, fjúff engar smá steikur sko, ég fékk mér kalkún og smá lamb og súkkulaðiköku og þá var ég gjörsamlega sprungin, en það er nú ekkert miðað við hvað birkir át, en það sem birkir át er bara lítið miðað við hvað pabbi át, fjiff mér stóð ekkert á sama sko, hann fékk sér þrisvar sko!! ;) hehe. Og svo voru þeir tveir líka rekandi við allt kvöldið eftir matinn, hehhehe. Kíktum í just4kids og fannst það ekkert skemmtileg búð, fórum aftur í toys r us og þar er sko flott dót, mig langar svo að vera lítil, eða ung, ég myndi vilja kaupa allt þar.!! Svo ætlaði maður að rekast e-ð á hana steinunni, en það var e-ð lítið, því sumir létu lítið sjá sig og voru bara daddddarææææ nú á ég örugglega að hætta að tala, hohoho;) sssss. En hún reddaði mér eitt stykki síma, ógilla flottur, 3,5 megapixla myndavél á honum, og svo allt þetta sem 3G símarnir hafa. Samt dáldið stór síminn, en það er í lagi, þá týni ég honum allavega ekki sko. Svo hef ég bara verið á fullu að skúra skrúbbog bóna, gera fínt fyrir jólin og sonna, og ég fékk sko að finna fyrir því um kvöldið, ég fékk þennan djöfullega verk í bakið og hreinlega læstist bara í því, og svo deginum eftir var mér illt í maganum, svona eins og harðsperrur eila, en það hjálpaði að sofa með hitapoka, svo næsta dag hélt ég áfram, tók til í tveim skápum, henti helling af gömlu skóladrasli og fann fullan poka af bókum sem er hægt að seljaJ og svo settum við upp eina jólaseríu og jólagardínu og einhverjar jólastyttur. Fórum svo út og keyptum skírnargjafir, erum að fara í skírn í dag hjá steina og kötu börnum og svo í afmæli hjá brynjari æðislega krúttinu mínu eftir þaðJ  svo keyptum við okkur jólastyttur tvær, ekki mikið úrval hér, á viðráðanlegu verði, keyptum aðventuljós, því hitt sem við keyptum í hittiðfyrra var víst einnota eða e-ð, fórum í bakaríið og átum óholt og fórum svo í bónus og ætluðum að kaupa plastkassa, en hann ætlaði að panta fleiri bleika sollis litla, því mig langaði frekar í sollis heldur en glæra, hehe;) jájájá, ég sé allt í bleiku. Þó svo þessir kassar eigi bara að vera niðri í geymslu, þá vil ég samt bleika. Fjuffff. ;) svo er ég búin að vera að þvo eins og brjálæðingur öll barnaföt, vil svo fá hjálp við að sortera þau eftir stærð og aldri og það þið vitið. Hver vill?
J en já váá þetta er sko orðið langt hjá mér og mér er orðið illt í rifbeinunum á að sitja svona lengi, þannig að ég reyni að blogga fyrr næst og hafa það styttra;)
Bleesssssssss. (bara mánuður eftir, ííísssssk)

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 11:47:23 / golden-tiger

33 vikur, já þið verðið bara að trúa því, allavega geri ég það varla =)

Jæjjja nú er ég komin 33 vikurJ fjúff. Var að koma frá ljósu áðan, bara skoðun, og allt er í góðu, meiraðsegja er ég alls ekki of þung, eins og ég er búin að hafa áhyggjur af alltaf, má meiraðsegja þyngjast um 10 kíló í viðbót, en ég ætla mér það nú alls ekki sko. En svo er það bara blóðið mitt, á að fara í þriðju blóðprufuna í næstu viku, er víst alllt of lágt blóð e-ð. En blóðþrýstingurinn er í fínu lagi, þannig að enginn þarf að segja mér að passa þrýstinginn. Og svo mældi hún frá lífbeini og upp, og það er akkúrat 33 cm, alveg eins og vikurnar sem ég er kominJ og svo er hjartslátturinn í henni litlu mjög fínn, 143 eða e-ð. Og svo á morgun er það skemmtilegasta, þá fer ég í sónarJ jeijj, er orðin svo spennt!!!JJJ og þá kemur 100% í ljós hvort málað verði yfir bleiku málninguna eður eiJSvo styttist  í að við förum suður með mömmu og pabbaJ það verður gaman, og líklega verður það seinasta sem við förum áður en litla kemur, veit ekki hvort við munum fara e-ð í desember, en þá er bara svo mikil geðveiki í bænum að kannski nennir maður ekkert að vera þar. Svo er ég ekkert allt of kát með veðrið núna, það var búið að vera allt autt og æðislegt veður síðustu daga, aldrei blaut í lappirnar eða skafa af bílnum og skauta til, en núna þá þurfti hann endilega að byrja að snjóa, og allt er hvítt. Pifffffff. En samt er rosalega hlítt úti, þannig að ég er enn bjartsýn á að snjórinn haldist ekki lengi sko. Kannki fer hann bara í dag. Jeijjj. Plííííss. Vil bara fá þennan snjó miðjan des, og svo má hann fara eftir áramótin þegar við erum búin að sprengja. Á helginni fórum við með hamar á flateyri til pabbanns birkis og honum fannst hann bara nokkuð góður, svo á laugardeginum buðum við mömmu,pabba,ástrós, gabríel, kjartani og einsa í maríupítsur og fullt af nammi. Svo á sunnudeginum borðuðum við hjá mömmu og pabba, og ég plataði pabba til að baka pönnsur, ekta pönnsur sko, ekki eitthvað pakkadrasl. Og ég át örugglgega 30 eða e-ð. Neee segi svona, ég át allavega mikið. En já nú er ekkert gaman sem ég er að segja frá þannig að ég ætla að fara í sturtu og éta. BlessssssssssBleeeeeeeeeesssssssssssssssPs. Hooooo pælið í því að það eru bara 49 dagar!!!úlalaaaaaaaaaaa

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 23:24:26 / golden-tiger

32 vikur já. spenninguur

Hef sagt það áður og segi það enn, vikurnar líða eins og dagar bara, fjúff, mér finnst ég alltaf vera nýbúin að blogga hvað ég er komin margar vikur og svo er það bara orðið úrelt strax. en það er bara stóórgott mál að allt líði svona hratt :) langar núna að það komi 15 nóv, þá fer ég í sónar, og svo langar mig að það komi 21 nóv, og svo má bara alveg koma desember, og þá fer maður að skreyta og baka og vííí:D og svo er bara að koma aftur helgi. á seinustu helgi fórum við í dalinn og borðuðum heimatilbúinn hamar, sem var sko bara miiklu betri en í hamraborg:) við fórum líka með pabba og gabríel og keyptum svo miiikiiið nammi að ég hélt ég myndi sko springa!! og svo horfðum við á video, einhverja körfuboltamynd sem strákur fær e-a undraskó og verður þá gegt góður í körfu. Já semsagt gabríel fékk að velja mynd:P svo var bara unnið og farið á flateyri. svo í dag þá sendi ég fæðingarorlofspappírsdraslið, fjúff það var léttir að vera laus við það, meira helv vesen og tími sem fer í það 8| :$ :P hmm og svo já ég fór að versla bara,og í sjóðandi bað með olíum og fleira. það var ljúft. slappaði svo vel af, þangað til erfitt var að anda, hehe það kemur mjög oft fyrir, enda er barnið að þrýsta öllu draslinu uppí kok á mér! 8| :lol: Svo í kvöld eldaði ég góðan mat fyrir kallinn og bakaði skinkuhornin sem hann og ástrós eru svo sólgin í. Svo setti ég barnaföt í nokkrar vélar, og jii ég fann sko ennþá minni sokka enn um daginn:haha: en jæjja núna ætla ég að fara að sofna yfir vinunum mínum (friends) .  blerrrrrrr


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 23:55:35 / golden-tiger

vá tíminn líður hratt,31 vikur! gúlp!

Já það er sko kominn vetur. Pifff. Ekkert ánægð með það, þá er maður alltaf blautur, alltaf kalt, sleipt úti, festir bílinn, þarf að lúsast áfram, vont veður, og svo maaaargt fleira. En eitt gott við veturinn, það þýðir að jólin eru að koma, og það þýðir þá að bleika prinsessan nálgast líkaJ ég var nú samt að leika mér með eina bók um daginn sem heitir “bókin með svörin” aji þið vitið, bókin sem maður nuddar og spyr spurninga, og það eru bara e-ð 4 “nei” í bókinni og allt hitt lengri svör, og þetta eru einhverjar þúsundir blaðsíða eða svo, og ég spurði bókina: er það satt að ég gangi með stelpu? Og ég lenti þá á: “nei” .. hmm það verður dáldið fyndið ef þetta er svo strákurJ húhúhhlala. Allavega þá er hún mjög hress, allavega á spörkunum að dæma, hún er mjög skotföst, og hefur gaman að því að sparka þegar ég ætla loksins að slaka á. Er orðin þyngri á mér með hverri vikunni næstum, enda er ég í dag komin 31 vikuJJ þetta líður svoooo fljóóótttttt. Stundum þegar ég ligg og hendin á birki eða bakið hans er upp við magan minn, þá finnur hann fótinn á barninu dragast svona eftir, eins og hún sé að klappa pabba sínum eða e-ð ,híhíJ fer annars í sónar svo 15 nóvember, það verður gaman að sjá, þ.e.a.s ef það sést e-ð í sónarnum hér á ísó. :p Í kvöld var ég bara að vinna, með henni þóru minni, við átum hamar og svo splæsti hún nammi, og átum yfir okkur, plahh. Hef minnkað við mig um 13% í vinnu, það munaði um það skoJ þegar ég fór svo í vinnuna áðan þá festi ég bílinn, en samt fyrir utan vinnuna, ég komst næstum því í stæðið og þá byrjaði ég að spóla, að var nú bara dáldið kjánalegt eins og maður segir. Svo þegar ég ar búin aðvinna þá bakkaði eg og áfram og bakka og áfram og þá loks komst ég sem betur fer, er náttla á sléttum dekkjum svo það þurfti engann skafl til að festa mig, bara smá meiri snjó.  Svo eftir 3 vikur förum við suður með mömmu og pabba, jeijjjj og verðum þá í íbúð, sem er lang þægilegast sko! Þá verður framhald af jólgjafainnkaupum, og keypt verður skiptiborð og vagga, þá ætti allt að vera komið fyrir prinsessuna, er meirað segja búin að vera flokka fötin hennar í þvott í kvöld. Svo vil ég fá óskalistann hennar Steinunnar takk fyrirJ  ætli ég sjálf þurfi ekki að fara að setja saman einhvern lista. Leiðinlegt að svara alltaf ég veit ekki ef fólk spyr hvað ég vilji. Ég er ekki frá því að mér sé farið að hlakka dáldið til að fara að skreyta og hlusta á jólalögin og sonna, en núna verður ekkert jafn auðvelt að príla upp um alla glugga og veggi til að þrífa og skreyta. Hóhóhooo. En jæjja er að deyja úr þreytu. blesssZZZZZZZZZZzzzzzzzzz

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
10. febrúar 2012
RSS tengill
Prinsessan okkar:)
Gleði Gleði
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1500 dögum